Sjónvarpsvigtunin fyrir UFC bardagakvöldið í London hefst núna kl. 18 í kvöld. Allir bardagamenn hafa þegar vigtað sig inn en vigtunin í kvöld er bara fyrir skemmtanagildið.
Gunnar Nelson og Leon Edwards náðu báðir vigt í morgun rétt eins og allir bardagamenn kvöldsins nema Jack Marshman. Bardaginn fer engu að síður fram en andstæðingur Marshman, John Phillips, fær 20% af tekjum Marshman.
Vigtunina má sjá í beinni hér að neðan.