Fjölmiðlatúrinn hjá Conor McGregor og Floyd Mayweather heldur áfram í kvöld þegar þeir heimsækja Toronto í Kanada.
Fyrsti blaðamannafundurinn af fjórum var í gær og halda þeir áfram til föstudags. Um 700.000 manns horfðu á blaðamannafundinn í Los Angeles í beinni útsendingu í gær og er hann nú með samanlagt 4,5 milljón áhorf.
Gríðarlegur áhugi er á þessum fjölmiðlasirkus en miðarnir á blaðamannafundinn á Wembley kláruðust á 10 mínútum. Það verður síðasti blaðamannafundurinn og klárast fjölmiðlatúrinn á föstudaginn.