Thursday, April 18, 2024
HomeForsíðaNý bardagahöll opnar í Reykjanesbæ

Ný bardagahöll opnar í Reykjanesbæ

Nú um helgina mun opna ný Bardagahöll Reykjanesbæjar á Smiðjuvöllum. Sérstök opnunarhátíð verður haldin um helgina af því tilefni.

Í Bardagahöllinni verða sér salir fyrir taekwondo, box og svo júdó/BJJ og er þetta mikil stækkun fyrir glímuna og taekwondo deildina. Húsnæðið er í kringum 1000 fermetrar og verður aðstaðan því með besta móti.

Það verður nóg um að vera á opnunarhátíðinni. Föstudaginn 7. september kl. 18 verður íþróttasálfræðingurinn Hreiðar Haraldsson með fyrirlestur. Fyrirlesturinn ber heitið Andlegur styrkur og kostar ekkert að mæta á hann en gestir eru beðnir um að skrá sig á þessum hlekk.

Á laugardegi og sunnudegi eru svo æfingabúðir með fyrrum Ólympíumeistara og núverandi bronsverðlaunahafa á Ólympíuleikunum í taekwondo, Dongmin Cha. Æfingabúðirnar verða opnar öllum og verða ókeypis en það þarf hins vegar að skrá sig á þær hér.

Á laugardeginum verða svo æfingabúðir í brasilísku jiu-jitsu sem kallast Berjumst með börnunum. Þar verður átta tíma kennsla með átta mismunandi íslenskum þjálfurum. 5.000 kr. kostar á æfingabúðirnar en námskeiðsgjöld renna óskipt til Barnaspítala Hringsins. Nánar verður fjallið um æfingabúðirnar síðar í vikunni og þá er hægt að skoða viðburðinn hér.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular