VBC og HFK fluttu nýlega í nýtt og betra 800 fermetra húsnæði á Smiðjuvegi 28 í Kópavogi. Á kynningunni verður kennsla kynnt fyrir komandi ár og má þar nefna Muay Thai, Freestyle wrestling, Hnefaleika, Brasilískt Jiu-Jitsu og lotu æfingar sem kallast Spartanþrek. Boðið verður uppá að fylgjast með sýningarbardaga í Brasilísku Jiu-Jitsu og í Hnefaleikum. Rapparinn góðkunni Sesar A mun taka lagið og einnig verður boðið uppá léttar veitingar.
MMAfréttir.is hvetur alla áhugamenn um bardagaíþróttir til þess að koma og skoða.