Valentina Shevchenko og Manon Fiorot eru byrjaðar að rífast á netinu og virðast hafa komist að samkomulagi í glórulausu veðmáli þó varla sé hægt að taka því of alvarlega.
Shevchenko sótti fluguvigtartitil sinn tilbaka með sigri á Alexu Grasso á UFC 306 í september og legið hefur í loftinu að næsti andstæðingur hennar verði Manon Fiorot.
Fiorot er 12-1 sem áhugamaður og hefur unnið alla 7 UFC bardaga sína til þessa. Síðustu tveir sigrar voru afar sannfærandi yfir tvær mjög háttskrifaðar konur í deildinni, Erin Blanchfield og Rose Namajunas, en puttabrot Namajunas í 1. lotu spilaði auðvitað stóran þátt í þeim bardaga.
Manon Fiorot setti nýlega út á X áskorun á Valentinu og sagði henni að hætta láta fólk bíða, hún vilji fá að mæta henni sem fyrst til þess að binda enda á ferilinn hennar.
Valentina svaraði henni með því að segja: “Þú tapar – þú leggst í helgan stein, samþykkt?”
Svo virðist sem Fiorot hafi samþykkt skilmálana þó erfitt sé að taka þessu of alvarlega
Ekkert hefur opinberlega heyrst frá UFC hvort þessi bardagi sé væntanlegur á næstu misserum en Fiorot virðist vera tilbúin strax og er að reyna að gera það sem hún getur til að sjá til þess að hjólin fari að snúast. Dæmandi af samfélagsmiðlum Valentinu virðist hún vera að hafa það náðugt í fríinu sínu og ekkert að drífa sig tilbaka þannig það gæti verið einhver bið í þessa viðureign.