HomeErlentStrickland meinað aðgöngu að Hvíta Húsinu

Strickland meinað aðgöngu að Hvíta Húsinu

Sean Strickland segist hafa verið bannað að mæta á UFC Freedom 250 sem fer fram á lóð Hvíta hússins í Washington þann 14. júní.

UFC Freedom 250 er einn sögulegasti viðburður í sögu UFC en bardagakvöldið fer fram á South Lawn við Hvíta húsið. Í aðalbardaganum mætast Ilia Topuria og Justin Gaethje um léttvigtartitilinn en Alex Pereira og Ciryl Gane mætast í næstsíðasta bardaga kvöldsins um bráðabirgðatitil í þungavigt.

Strickland, sem er einn umdeildasti bardagamaður UFC, fullyrðir að honum hafi verið meinað að mæta á viðburðinn vegna ummæla sinna um Donald Trump, Ísrael, Benjamin Netanyahu og Jeffrey Epstein. Hann hefur gagnrýnt viðburðinn harðlega á samfélagsmiðlum og segir sig vera eina bandaríska karlkyns meistarann í UFC sem sé ekki velkominn á viðburðinn.

UFC eða Hvíta húsið hafa ekki staðfest opinberlega að Strickland sé formlega bannaður. Það sem liggur fyrir er að Strickland segir sjálfur að hann fái ekki að mæta og nokkrir erlendir miðlar hafa fjallað um málið á þeim forsendum.
Strickland virðist þó ekki ætla að sitja heima. Hann hefur sagst ætla að fljúga til Washington, taka beltið með sér og mótmæla fyrir utan Hvíta húsið með gjallarhorn.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið