HomeInnlentSvekkjandi tap í Manchester

Svekkjandi tap í Manchester

Ungi Mjölnisstrákurinn Aron Franz Kristjánsson steig stórt og mikilvægt skref í MMA-ferlinum sínum um helgina þegar hann mætti Jack McCloughlin í Caged Warriors 207. Aron Franz byrjaði bardagann virkilega vel en á svipstundu tókst Jack að snúa bardaganum sér í vil.

Aron og Jack voru annar upphitunarbardagi kvöldsins. Aron mætti með reynslumikið þjálfarateymi í þeim Jóni Viðari og Gunnari Nelson. Bardaginn byrjaði virkilega vel og var Aron mun hættulegri strikerinn af þeim tveimur eins og við var að búast. Þegar fyrsta lota var um hálfnuð kastaði Aron hendinni sinni aðeins og ákaft sem varð til þess að Jack gat skotið undir hana og náð mjög góðu taki utan um Aron á stuttum tíma. Það markaði upphafið á endanum þar sem Jack tókst að taka Aron í gólfið, koma krókunum inn og læsa inn rear naked choke.

Bardaginn er opinn á Youtube.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið