Í 46. þætti Tappvarpsins fórum við yfir stöðu Gunnars Nelson og mögulega andstæðinga. Þá fórum við aðeins yfir UFC 221 og Rondu Rousey í WWE.
Gunnar Nelson er nú í leit að sínum næsta bardaga. Talað hefur verið um UFC bardagakvöldið í London sem mögulegan áfangastað en það verður ólíklegra með hverjum deginum.
Það var svo staðfest rétt í þessu að Fabricio Werdum og Alexander Volkov berjast í aðalbardaga kvöldsins í London en þátturinn var tekinn upp í gær, miðvikudag, áður en bardaginn var tilkynntur.