Á miðvikudaginn var næsti bardagi Gunnars Nelson staðfestur. Gunnar mætir Thiago Alves á UFC bardagakvöldinu í Kaupmannahöfn en við fórum aðeins yfir bardagann í Tappvarpinu.
Bardaginn fer fram þann 28. september í Danmörku en þetta verður fyrsta heimsókn UFC til landsins. Gunnar mætir reynsluboltanum Thiago Alves en Alves hefur ekki átt neitt sérstaklega góðu gengi að fagna undanfarin ár.
Alves er þó auðvitað hokinn af reynslu en hann barðist um veltivigtartitilinn í UFC árið 2009.
Þetta er fyrsti bardaginn sem staðfestur er á bardagakvöldið í Kaupmannahöfn en talið er líklegt að Jack Hermannsson verði í aðalbardaga kvöldsins.