Gunnar Nelson berst í kvöld gegn Alex Oliveira á UFC 231 í Toronto. Undirbúningnum fyrir bardagann er nú formlega lokið og ekkert eftir að gera nema að berjast!
Í síðasta þættinum af Grindinu með Gunnari fáum við að sjá aðeins á bakvið tjöldin í auðveldum niðurskurði hjá Gunnari. Eins og vanalega var Gunnar ekki að skera mikið niður og gekk niðurskurðurinn vel.
Að lokum þakkar Gunnar fyrir stuðninginn og nú sé komið að skemmtilega partinum – að berjast!