Fyrsta bardaganum á aðalhluta bardagakvöldsins á UFC 194 var að ljúka. Max Holloway sigraði Jeremy Stephens eftir dómaraákvörðun.
Bardaginn fór rólega af stað og hélt Holloway góðri fjarlægð allan tímann og átti Stephens erfitt með að hitta Holloway. Stephens reyndi fellur upp við búrið en Holloway sýndi góða felluvörn. Í 3. lotu tókst Holloway að taka Stephens niður og hótaði „rear naked choke“ hengingu nokkrum sinnum en Stephens varðist vel.
Í lok 3. lotu reyndi Stephens hvað hann gat til að klára Holloway en tókst ekki. Max Holloway sigraði eftir einróma dómaraákvörðun. Þetta var hans áttundi sigur í röð í UFC.