Annar þátturinn í Embedded seríunni fyrir UFC 209 er kominn. Í þættinum er fylgst með þeim Khabib Nurmagomedov, Tony Ferguson, Tyron Woodley og Stephen Thompson.
UFC 209 fer fram á laugardaginn í Las Vegas. Í 2. þætti í Embedded seríunni má sjá Daniel Cormier, liðsfélaga Khabib, bregðast illa við þegar hann komst að því að hann væri búinn að kalla sjálfan sig tæfu á rússnesku í dágóðan tíma. Khabib og aðrir rússneskir bardagamenn í AKA lugu að Cormier og brást hann illa við. Meiri grínistarnir þarna í AKA.