Í nýjasta Embedded þættinum eru lætin í Conor McGregor á fimmtudaginn í aðalhlutverki. UFC ætlar greinilega ekkert að fela það sem Conor gerði á fimmtudaginn.
Conor McGregor gekk berserksgang á fimmtudaginn og réðst á rútu með Khabib Nurmagomedov innanborðs. Þó nokkur myndbönd af atvikinu hafa birst á samfélagsmiðlum en ný myndbönd af atvikinu sjást í nýjasta Embedded þættinum.