UFC 250 fer fram um helgina í Las Vegas. Fyrsti Embedded þátturinn fyrir helgina er kominn.
UFC 250 verður í Apex æfingaaðstöðu UFC í Las Vegas án áhorfenda. Þær Amanda Nunes og Felicia Spencer mætast í aðalbardaga kvöldsins um fjaðurvigtartitil UFC.
UFC leggur hótel undir sig fyrir bardagamenn helgarinnar, þjálfara og starfsmenn UFC. Allir eru skimaðir fyrir kórónaveirunni við komu á hótelið eins og sjá má í þættinum. Bardagamenn helgarinnar þurfa svo að vera í einangrun þar til niðurstöður úr skimuninni koma í ljós og fara svo í annað próf á föstudaginn.
Þáttinn má sjá hér að neðan.