Saturday, April 20, 2024
HomeErlentMyndband: Bestu rothögg Cody Garbrandt í UFC

Myndband: Bestu rothögg Cody Garbrandt í UFC

Cody Garbrandt mætir Raphael Assuncao á UFC 250 um helgina. Garbrandt hefur átt erfitt uppdráttar en það má ekki gleyma fyrri afrekum hans.

Cody Garbrandt var á leiðinni með að verða stór stjarna fyrir UFC. Í fyrstu sex bardögum hans í UFC kláraði hann fjóra af þeim með rothöggi. Garbrandt varð meistari með magnaðri frammistöðu gegn Dominick Cruz en síðan þá hefur hallað undan fæti.

Garbrandt hefur tapað þremur bardögum í röð og það allt eftir rothögg. Upprisa hans í UFC var mjög skemmtileg en hér má sjá hans bestu rothögg í UFC.

Garbrandt er þó bara 28 ára gamall og spurning hvort hann geti snúið við blaðinu gegn Assuncao um helgina.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular