HomeErlentUFC Baku: Rafael Fiziev mætir Manuel Torres í spennandi bardaga

UFC Baku: Rafael Fiziev mætir Manuel Torres í spennandi bardaga

Rafael Fiziev, einnig þekktur sem „Ataman“, hefur vakið athygli fyrir kraftmikinn og tæknilegan bardagastíl. Eftir að hafa sigrað Marc Diakiese á UFC Fight Island 2 árið 2020 hefur Fiziev haldið áfram að sýna framfarir og er nú talinn einn af efnilegustu bardagamönnum léttvigtardeildarinnar þó að síðustu úrslit hans hafi ekki alveg sýnt hversu góður hann er í rauninni.

Manuel Torres, frá Mexíkó, hefur einnig gert sig gildandi í UFC með þremur sigrum í röð síðan hann gekk til liðs við samtökin árið 2021. Í síðasta bardaga sínum sigraði hann Chris Duncan með rear naked choke á innan við tveimur mínútum. Eftir þann sigur lýsti Torres yfir áhuga á að mæta sterkari andstæðingum og stefna á topp 20, jafnvel topp 10 í léttvigtardeildinni.

Bardaginn á milli Fiziev og Torres er mikilvægur fyrir báða bardagamennina. Fiziev vill sanna að hann sé tilbúinn fyrir stærri áskoranir og mögulega titilbardaga í framtíðinni, á meðan Torres leitast við að festa sig í sessi sem alvarlegur keppinautur í deildinni.

Bardagakvöldið byrjar klukkan 16:00 á íslenskum tíma og er tilvalið tækifæri fyrir bardagaáhugafólk til að negla í hið klassíska grill- og bardagakvöld.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið