Sporgöngumaðurinn hans Gunnars Nelson, Aron Franz, mun stiga inn í búrið í kvöld og berjast sinn stærsta bardaga til þessa. Aron, sem er 1 – 0 sem atvinnumaður í MMA, er kominn á samning hjá Caged Warriors, einum stærstu MMA samtökum heimsins. Caged Warriors eru frægir fyrir að vera eins konar stökkpallur inn í UFC enda hafa margir frægustu bardagamenn sögunnar komist inn í UFC í gegnum samtökin. Conor McGregor og Paddy Pimpblett börðust báðir fyrir samtökin. Kvöldið verður sýnt í beinni á UFC Fight Pass.
Aron Franz kom sér rækilega á kortið með spinning head kick KO í Florida fyrir ári síðan þegar Aron barðist fyrsta bardagann sinn í atvinnumennsku. Rothöggið varð alveg væral og fékk Aron strax möguleika á að berjast aftur í Bandaríkjunum og fleiri stofnanir vildu klófesta Íslendinginn efnilega.
Aron Franz verður þriðji bardagi kvöldsins á Caged Warriors 207 í Manchester. Upphitunarhluti kvöldsins byrjar klukkan hálf fimm á íslenskum tíma. Vanalega má gera ráð fyrir 20 min fyrir hvern bardaga og því má eiga von á að Aron stigi inn í búrið klukkutíma eftir að kvöldið byrjar. Hins vegar má hafa í huga að Caged Warriors er staður til að sanna sig og er þekktur fyrir finish og geggjaða bardaga. Þannig að við myndum mála með að MMA-aðdáendur verði límdir við skjáinn frá fyrstu mínútu.
Aron Franz mun mæta Jack McCloughlin í fluguvigtinni. Andstæðingurinn hans Arons er ungur Englendingur sem æfir í Atherton Submission Wrestling. Jack er með tvo sigra sem atvinnumaður í MMA en hann hefur barist tvisvar sinnum áður í Caged Warriors og er 1 – 1 innan stofnunarinnar.
Miðað við það sem við sjáum á blaði má eiga von á því að Jack sé efnilegur glímumaður. Aron Franz er hins vegar virkilega Well Rounded bardagamaður sem hefur allt til brunns að bera til þess að veðra mögulegan glímustorm og klára bardagann standandi.





