UFC bardagamaðurinn Elias Theodorou verður spjaldastrákur hjá Invicta þann 24. mars. Þetta verður í fyrsta sinn sem karlmaður sinnir þessu starfi hjá Invicta.
Konur eins og Brittney Palmer og Arianny Celeste hafa gert garðin frægan sem spjaldastelpur (e. ring girls) hjá UFC. Í Invicta, þar sem einungis konur berjast, hafa konur á borð við Natasha Wicks haldið á spjöldunum og tilkynnt áhorfendum hvaða lota er í þann mund að hefjast.
Á Invicta FC 28 þann 24. mars mun Theodorou vera spjaldastrákur og segja áhorfendum hvaða lota er að fara að byrja en þetta sagði hann í The MMA Hour í gær.
„MMA hefur alltaf verið leiðandi í jafnrétti kynjanna á margan hátt. Maður sér það þegar kvennabardagarnir eru orðnir eitt stærsta aðdráttaraflið á stórum kvöldum og fyrir framan milljónir áhorfenda og nú verð ég fyrsti spjaldastrákurinn,“ sagði Theodorou.
Theodorou var spjaldastrákur á litlu bardagakvöldi í Montreal á dögunum en Invicta bardagakvöldið verður mun stærri vettvangur.