Ovince St. Preux náði góðum sigri fyrr í kvöld í Kaupmannahöfn. St. Preux má þó teljast heppinn að hafa lifað af erfiða byrjun.
Ovince Saint-Preux var á góðri leið með að tapa gegn Michal Oleksiejczuk en OSP er með níu líf. Á einhvern ótrúlegan hátt tókst honum að narra enn einn eindstæðinginn í gildru og kláraði bardagann með sínu fræga „Von Flue choke“. Þetta var hans fjórða slíkt uppgjafartak í UFC.
Í þriðja bardaganaum á aðalhluta kvöldsins sigaraði Ion Cutelaba Khali Rountree Jr. með höggum í gólfinu í fyrstu lotu. Þetta tók snöggt af en flottur sigur hjá Cutelaba.