UFC hélt tvö bardagakvöld í gær, annað í Belfast og hitt í Sao Paulo í Brasilíu. Hér má sjá öll úrslit kvöldsins.
Bæði kvöldin voru nokkuð skemmtileg. Gegard Mousasi hefndi fyrir tapið gegn Uriah Hall með því að klára Hall með höggum í gær. Þetta var fjórði sigur Mousasi í röð og sá þriðji í röð eftir rothögg.
Öll önnur úrslit kvöldsins má sjá hér:
Aðalhluti bardagakvöldsins:
Millivigt: Gegard Mousasi sigraði Uriah Hall með tæknilegu rothöggi eftir 4:37 í 1. lotu. Léttvigt: Stevie Ray sigraði Ross Pearson eftir klofna dómaraákvörðun. Þungavigt: Alexander Volkov sigraði Timothy Johnson eftir klofna dómaraákvörðun. Fjaðurvigt: Artem Lobov sigraði Teruto Ishihara eftir dómaraákvörðun.
Upphitunarbardagar
Millivigt: Jack Marshman sigraði Magnus Cedenblad með tæknilegu rothöggi eftir 3:32 í 2. lotu. Fluguvigt: Kyoji Horiguchi sigraði Ali Bagautinov eftir dómaraákvörðun. Léttvigt: Kevin Lee sigraði Magomed Mustafaev með uppgjafartaki (rear-naked choke) eftir 4:31 í 2. lotu. Strávigt kvenna: Amanda Cooper sigraði Anna Elmose eftir dómaraákvörðun. Þungavigt: Justin Ledet sigraði Mark Godbeer með uppgjafartaki (rear-naked choke) eftir 2:16 í 1. lotu. Hentivigt (172,8 pund): Zak Cummings sigraði Alexander Yakovlev með uppgjafartaki (straight armbar) eftir 4:02 í 2. lotu. Bantamvigt kvenna: Marion Reneau sigraði Milana Dudieva með tæknilegu rothöggi eftir 3:03 í 3. lotu. Bantamvigt: Brett Johns sigraði Kwan Ho Kwak eftir dómaraákvörðun. Veltivigt: Abdul Razak Alhassan sigraði Charlie Ward með rothöggi eftir 53 sekúndur í 1. lotu.
Sao Paulo
Aðalhluti bardagakvöldsins:
Léttþungavigt: Ryan Bader sigraði Antônio Rogério Nogueira með tæknilegu rothöggi eftir 3:51 í 3. lotu. Bantamvigt: Thomas Almeida sigraði Albert Morales með tæknilegu rothöggi eftir 1:37 í 2. lotu. Strávigt kvenna: Cláudia Gadelha sigraði Cortney Casey eftir dómaraákvörðun. Millivigt: Krzysztof Jotko sigraði Thales Leites eftir dómaraákvörðun. Veltivigt: Kamaru Usman sigraði Warlley Alves eftir dómaraákvörðun. Veltivigt: Sérgio Moraes sigraði Zak Ottow eftir klofna dómaraákvörðun.
Upphitunarbardagar (Fox Sports 1)
Millivigt: Cezar Ferreira sigraði Jack Hermansson með uppgjafartaki (arm-triangle choke) eftir 2:11 í 2. lout. Léttþungavigt: Gadzhimurad Antigulov sigraði Marcos Rogério de Lima með uppgjafartaki (guillotine choke) eftir 1:07 í 1. lotu. Bantamvigt: Johnny Eduardo sigraði Manvel Gamburyan með tæknilegu rothöggi eftir 46 sekúndur í 2. lotu. Þungavigt: Luis Henrique sigraði Christian Colombo með uppgjafartaki (guillotine choke) eftir 2:12 í 3. lotu.
Upphitunarbardagar (UFC Fight Pass)
Bantamvigt: Pedro Munhoz sigraði Justin Scoggins með uppgjafartaki (guillotine choke) eftir 1:55 í 2. lotu. Léttþungavigt: Darren Stewart sigraði Francimar Barroso með tæknilegu rothöggi eftir 1:34 í 1. lotu.