Strákarnir frá Mjölni keppa á Goliath Fight Series í kvöld. Gunnar Nelsson leiðir hópinn en inn í búrið stiga þeir Viktor Gunnarsson, Logi Geirsson, Steinar Bergsson og Aron Franz. Viktor mun berjast upp á sinn fyrsta titil á ferlinum þegar hann mætir Englendingnum Owen Usman (3 – 0).
Bardagakvöldið hefst klukkan 17:00 í dag og verður sýnt í beinni útsendingu á Minigarðinum.
Viktor gaf sér tíma í viðtal við MMA Fréttir og var mjög sprækur fyrir bardagann. Viktor barðist síðast á Battle Arena-bardagakvöldi í desember og því óhætt að segja að endurkoman í búrið hafi ekki getað verið sneggri. Viktor mætti þar andstæðing sem var vel undirbúinn og tókst honum að hanga inni með Viktori allar þrjár loturnar, í fyrsta skipti á ferlinum hans Viktors.
Að eigin sögn hefur Viktor æft meira en nokkru sinni áður án þess að fara í ofþjálfun. Hann hefur lagt áherslu á sparr-æfingar í búrinu og rifið ákefðina upp á næsta stig.
Viktor er búinn að kynna sér Owen Usman og telur sig vera búinn að átta sig á honum.
„ Hann er fundamental solid gæjji, hann gerir allt rosalega fínt. Hann accellar ekki neins staðar. Hann er ósgirgaður en ég held að ég geti brotið hann.“
– Viktor Gunnarsson
Viðtalið við Viktor má finna í heild sinni á Instagram síðu MMA Frétta.





