spot_img
Tuesday, February 17, 2026
Minigarðurinnspot_imgspot_imgspot_img
HomeBJJVilhjálmur og Stefán tilbúnir í ADCC Trials í dag.

Vilhjálmur og Stefán tilbúnir í ADCC Trials í dag.

ADCC Trials Serbía hefst í dag og munu sjö Íslendingar keppa á mótinu. Þar af þrír frá Reykjavík MMA og fjórir frá Mjölni. Þeir sem standa helst upp úr keppnihópnum eru þeir Vilhjálmur Arnarsson (Reykjavík MMA) og Stefán Fannar (Mjölnir). Þess má til gamans geta að MMA Fréttir leggja fram einn keppanda á mótinu.

Stefán og Vilhjálmur munu keppa í Mens professional -77 kg flokki sem hefst seint í dag eftir að aðrir keppendur hafa lokið leik. Stefán Fannar fær frían sigur í fyrstu umferð (Bye) en Vilhjálmur mun mæta Amir Marouani frá London Grapple. Alls eru 124 strákar skráðir í flokkinn. Flokkurinn mun þar með byrja á 64 viðureignum og er hefðbundin útsláttarkeppni.

Hægt verður að fylgjast með gangi mála inni á Instagram-síðu MMA Frétta og má eiga von á að glímurnar frá degi eitt muni rata inn á YouTube-rás MMA Frétta seint í kvöld.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið