UFC Fight Night: McGregor vs. Brandao fer fram þann 19. júlí en þar mun Gunnar Nelson etja kappi við Zak Cummings í næst síðasta bardaga kvöldsins. Gríðarleg eftirspurn var eftir miðum og seldist upp á örfáum mínútum. Á morgun ætlar UFC að bæta við nokkrum miðum og hefst salan kl 9 í fyrramálið (1. júlí).
Aldrei áður hefur selst jafn fljótt upp á einn UFC viðburð í Evrópu og ætlar UFC nú að anna eftirspurninni með því að fjölga miðum. Miðasalan hefst kl 9 þann 1. júlí hér en ekki er vitað hversu margir miðar verða í boði. Þetta er kjörið tækifæri fyrir Íslendinga að tryggja sér miða á bardaga Gunnars Nelson en vænta má þess að miðarnir fjúki út líkt og síðast.
BREAKING NEWS!! Extra tickets to #UFCDublin will go on sale tomorrow morning at 10am BST!! http://t.co/WHqmiOYOgX pic.twitter.com/ujVvbmRckS
— UFC United Kingdom (@UFC_UK) June 30, 2014