Tuesday, April 23, 2024
HomeForsíðaBardagar Íslendinganna á EM komnir á netið

Bardagar Íslendinganna á EM komnir á netið

Sunna Rannveig Davíðsdóttir
Mynd: Kjartan Páll Sæmundsson.

Átta Íslendingar kepptu á Evrópumeistaramótinu í MMA í fyrra. Mótshaldarar virðast vera að setja bardaga þeirra á netið um þessar mundir og hafa nokkrir íslenskir bardagar ratað á netið.

Mótshaldarar taka sér nægan tíma í þetta en mótið fór fram í nóvember. IMMAF, sem stóð fyrir mótinu, hefur gefið út nokkra bardaga á síðustu dögum og má þar finna nokkra íslenska bardaga.

Einn af bardögunum sem IMMAF gaf út er úrslitabardaginn í 125 punda flokki. Þar keppti okkar kona, Sunna Rannveig Davíðsdóttir, til úrslita gegn Anja Saxmark en bardagann má sjá hér.

Egill Øydvin Hjördísarson keppti tvo bardaga á mótinu en hér má sjá seinni bardaga hans.

Pétur Jóhannes Óskarsson tók brons í þungavigtinni en hér er fyrsti bardagi hans á mótinu.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular