Sunna Rannveig Davíðsdóttir sigraði Kelly D’Angelo á Invicta kvöldinu á laugardaginn. Bardagi þeirra var valinn besti bardagi kvöldsins á Invicta FC 24 kvöldinu.
Bardagi Sunnu og Kelly D’Angelo var flott viðureign og valinn besti bardagi kvöldsins, Fight of the Night, af Invicta bardagasamtökunum. Þetta er í annað sinn í röð sem bardagi Sunnu er valinn sá besti af Invicta.
Bardagi hennar gegn Mallory Martin í mars var einnig valinn besti bardagi kvöldsins. Fyrir vikið fékk Sunna 1000 dollara bónus eða 106.000 íslenskar krónur sem og andstæðingur hennar, Kelly D’Angelo.
Sunna Rannveig er núna 3-0 á atvinnuferlinum og verður áhugavert að sjá hvaða andstæðing hún fær næst.