Eins og við greindum frá í gær mætast þeir Robbie Lawler og Carlos Condit um veltivigtartitilinn í desember. Fyrrum meistarinn Johny Hendricks var ekki sáttur og lét í sér heyra á Twitter í gær.
As the champion I would think that u would want to fight the #1 person instead of running @Ruthless_RL bc we have unfinished business
— Johny Hendricks (@JohnyHendricks) July 23, 2015
Hendricks vildi fá annan bardaga gegn Lawler en mætir þess í stað Tyron Woodley á sama bardagakvöldi. Fyrrum Bellator meistarinn Ben Askren og Hendricks hafa lengi deilt á Twitter og svaraði Askren Hendricks í gær.
Judging by the size of your belly I doubt you do much running these days https://t.co/sFDLXeoEFx
— Ben Askren (@Benaskren) July 23, 2015
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Askren skítur á Hendricks. Askren er veltivigtarmeistari ONE Championship í Asíu og hefur aldrei barist í UFC.