Hinn 51 árs gamli Bernard Hopkins lauk boxferli sínum í gær með tapi gegn Joe Smith Jr. Hopkins var kýldur niður og út úr hringnum í áttundu lotu í síðasta bardaganum á ferlinum.
Þetta var fyrsta tap Hopkins eftir rothögg á ótrúlegum ferli hans í boxinu sem stóð yfir í 28 ár. Hopkins var þó ekki sáttur með þennan endi og hélt því fram að Smith hefði ýtt sér úr hringnum en myndbandið sýnir að svo var ekki.
Hopkins hafði ekki barist í tvö ár og lýkur ferlinum með bardagaskorið 55-8-2 (2).
https://www.youtube.com/watch?v=Z9qnZbL6b5I