Keppnisleyfi Cain Velasquez hefur verið fellt niður og getur hann því ekki mætta Fabricio Werdum á föstudaginn á UFC 207.
Eftir að Cain greindi frá meiðslum sínum í viðtali við ESPN hefur íþróttasamband Nevada fylkis (Nevada Athletic Commission, NAC) bannað honum að keppa. Í viðtalinu viðurkenndi Cain að hann ætti erfitt með að standa uppréttur í meira en 10 mínútur og hefur notað Cannabidiol (CBD). CBD finnst í kannabis plöntunni og notar Cain munnsprey við sársaukanum.
Cain fór í læknisskoðun og mat NAC sem svo að hann væri ófær um að berjast vegna meiðslanna. „Byggt á viðtölum við Hr. Velasquez, læknisskýrslum, úrskurði stjórnar og lækna höfum við ákveðið að Hr. Velasquez sé ófær um að berjast,“ sagði Bob Bennett, stjórnarformaður NAC, við Ariel Helwani á dögunum.
Cain fær því ekki leyfi til að berjast en hann fer í aðgerð þann 4. janúar til að bót meina sinna.
Cain Velasquez ítrekaði þó margoft eftir viðtalið að hann væri í lagi og væri fullfær um að berjast. Hann birti mörg myndbönd af sér á samfélagsmiðlum að æfa og langar að berjast. „Það er í góðu lagi með mig. Ég fæ kortísón sprautu. Ég verð 100%, ekkert vandamál. Ég var að taka tveggja tíma æfingar núna standandi. Mér líður vel,“ sagði Cain fyrr í vikunni áður en honum var bannað að keppa.
Það var þó ekki nóg fyrir NAC og tekur sambandið fram fyrir hendur bardagamanna þegar þau telja að hættan sé augljós. Cain hafði þó ekki hugmynd um að hann myndi ekki fá að keppa og frétti fyrst af því í fjölmiðlum.
Haven’t heard I’m out of #ufc207, as far as I know it’s still on… @FabricioWerdum
— Cain Velasquez (@cainmma) December 24, 2016
Was just cleared by Dr 30 mins ago and then he conferenced the Nevada Athletic Commision and spoke to them and recleared me with them.
— Cain Velasquez (@cainmma) December 24, 2016
Not sure what is going on… #ufc207
— Cain Velasquez (@cainmma) December 24, 2016
Velasquez’s doc cleared him a few hours ago. He wasn’t notified by either UFC or NAC he was out until moments ago. After stories were out.
— Ariel Helwani (@arielhelwani) December 24, 2016
I smell malarkey. If Cain is “unfit to fight” then the whole ufc roster is unfit to fight. I trained with him yesterday. #ufc207
— Todd Duffee (@ToddDuffee) December 25, 2016
Þetta eru mikil vonbrigði fyrir Cain Velasquez og bardagaaðdáendur enda ríkti mikil spenna fyrir bardaganum. Sigurvegarinn hefði að öllum líkindum fengið næsta titilbardaga gegn Stipe Miocic.
UFC 207 fer fram þann 30. desember í Las Vegas þar sem Amanda Nunes mætir Rondu Rousey í aðalbardaga kvöldsins.