Conor McGregor er tvöfaldur meistari í UFC eftir sigur á Eddie Alvarez í nótt. Conor fór á kostum í viðtalinu eftir bardagann og var brjálaður að hann skyldi ekki fá hitt beltið.
Conor McGregor kláraði Alvarez með rothöggi eftir þrjár mínútur í 2. lotu og naut mikilla yfirburða. Hann er nú ríkjandi fjaðurvigtar- og léttvigtarmeistari eftir sigurinn.
Conor fannst fáranlegt að hann skyldi bara bera eitt belti í búrinu og hafði miklar áhyggjur af því hvar hitt beltið væri. UFC fékk beltið hjá Tyron Woodley lánað svo Conor gæti haldið á báðum beltunum í búrinu.
Hér að neðan má sjá kostulegt viðtal við Conor McGregor.