Það eru minna en tvær vikur í risabardaga Jose Aldo og Conor McGregor. Hér að neðan má sjá óhefðbundan en skemmtilega stiklu frá aðdáanda fyrir bardagann stóra.
Stiklan er í óhefðbundnari kantinum en kapparnir mætast á UFC 194 þann 12. desember. Sama kvöld mætir Gunnar Nelson Brasilíumanninum Demian Maia.