Íslenska hnefaleikadrottningin Erika Nótt Einarsdóttir mun eiga frumraun sína í Misfits Boxing næstkomandi laugardag í Copper Box Arena í London. Flest bardagaáhugafólk þekkir til Eriku en hún varð snemma ein af efnilegustu hnefaleikakonum Íslands auk þess að vera mjög skemmtilegur og áberandi karakter.
Erika varð Norðurlandameistari í hnefaleikum árið 2024 fyrst Íslendinga og tilkynnti stuttu seinna að hún myndi halda út í atvinnumennskuna eftir flottan sigur á Icebox. Erika, sem er með stóran hóp fylgjenda á samfélagsmiðlum, skrifaði á endanum undir samning við Misfits Boxing og þreytir frumraun sína á laugardaginn 10. október.
Andstæðingur Eriku verður hin 37 ára gamla Carla Jade en sú hefur verið viðloðandi bardagasenuna í mörg ár og gegnt ýmsum hlutverkum. Carla starfaði upprunalega sem hringstelpa (e. Ring girl) áður en hún stofnaði að lokum fyrirtæki sem annast og sér um uppkomandi hringstelpur, Ring girl promotion. Carla er rétt eins og Erika með risafylgi á samfélagsmiðlum en Instagram-reikningurinn hennar er með yfir 44 þúsund fylgjendur sem er þó töluvert minna en Erika.
Carla Jade (4 – 1 – 1) er fjögurra barna móðir og ríkjandi Misfits-meistari í léttvigtinni og hefur varið belti í þrígang. Eina tap Carla kom gegn Pearl Conzalez þegar Carla gerði atlögu að millivigtartitlinum.
Erika Nótt hefur beðið eftir þessu tækifæri lengi og þurft að vera þolinmóð á meðan rétta sviðið og andstæðingurinn fyndist. Hún hefur verið dugleg að mæta í hlaðvörp og vekja athygli á sér, síðast í Square Circle Pod sem kom út 4. október. Þar fer Erika ekki fögrum orðum um andstæðinginn sinn og segir hann heldur pirrandi. Erika hefur svo sem aldrei verið hrædd við að tjá skoðanir sínar en hún skefur ekkert af hlutunum í nýjasta þættinum af Square Circle.
Bardaginn verður á besta tíma. Kvöldið hefst kl 18:00 að staðartíma í London sem er 17:00 fyrir okkur hérna heima. DAZN sér um útsendinguna en þeir sem vilja leggja land undir fót geta fengið miða inni á Ticketmaster.






