HomeInnlentSvakalegt Glacier Fight Night hófst og endaði með beinbroti

Svakalegt Glacier Fight Night hófst og endaði með beinbroti

Glacier Fight Night var haldið í þriðja skiptið í sögu sinni í Framheimilinu í gærkvöldi. Kvöldið byrjaði með látum þegar Steinar Bergsson kláraði Jimmy Manders með uppgjafartaki eftir að hafa handleggsbrotið hann með sparki fyrr í lotunni. Frammistaða Steinars setti tóninn fyrir kvöldið sem endaði ekki eins og við hefðum vonað en í aðalbardaga kvöldsins neyddist Hrafn Þráinsson til að hætta í bardaganum vegna handleggsbrots sem hann hlaut eftir spark frá Will Bean.

Það var uppselt í framheimilinu í gær og mátti finna í andrúmsloftinu stemninguna og eftirvæntinguna þegar MMA-aðdáendur landsins biðu eftir sínum uppáhaldsbardagamanni. Á kvöldinu voru fjórir titilbardagar og þar af ein titilvörn þar sem Vitalii Korshak varði beltið sitt gegn Frakkanum Souleymane Kacimi.

Hekla Friðriksdóttir fékk annað tækifæri til að næla sér í GFN-belti en hún mætti Norðurlandameistaranum Kerrtu Saarnisaari. Það var þó Kerrtu sem sigraði bardagann með einróma dómaraúrskurði eftir að hafa átt virkilega sannfærandi frammistöðu í búrinu. Kerrtu tókst að halda bardaganum standandi allan tímann og leika sinn leik sem á endanum skilaði henni sigrinum og GFN Bantamvigtarbeltinu.

Vitali Korshak frá Reykjavík MMA varði beltið sitt gegn Frakkanum Souleymane Kacimi. Sá franski kom á óvart í fyrstu lotu og tókst að halda Vitalii lengi með standandi body lock og halda út lotuna. Vitali kom hálfbrjálaður út í annarri lotu og gjörsamlega straujaði Kacimi. Vitali lenti beinni vinstri úr southpaw stöðu sem varð til þess að Kacimi datt upp við búrið og þar reif Vitali hann niður í gólfið. GFN meistarinn náði svo bakinu á þeim franska og lét höggin dynja yfir hann þar sem Kacimi lá flatur með magann í gólfinu og kom engum vörnum við. Kacimi var illa haldinn eftir viðskiptin sín við Vitali og þurfti að yfirgefa búrið í neyð.

Stjarnan frá Mjölni, Mikael Aclipen, var virkilega nálægt því að verða veltivigtarmeistari GFN. Mikael dómineraði bardagann gegn Charlie Lynch-Spence í tvær lotur og vann fyrstu lotuna mögulega 10 – 8 en Charlie fann enga leið til að stöðva Mikael í lotunni. Mjölnisstrákurinn ungi var nálægt því að klára bardagann í tvígang með rear naked choke en með einhverjum undursamlegum hætti tókst Charlie að sleppa! Svipaða sögu mátti segja um aðra lotu en Charlie tókst aðeins að vinna sig inn í bardagann. Þegar ein og hálf mínúta var eftir af þriðju lotu virtist Mikael ekki eiga mikið eftir í tanknum og byrjaði Charlie að hitta höggunum sínum oftar. Upphafið á endanum kom svo þegar Mikael skaut í fellu en Charlie mætti tilrauninni með upphöggi sem vankaði Mikael. Charlie nýtti tækifærið til að klára bardagann með ground n pound.

Lokabardaginn var upp á ofurléttvigtarbeltið þar sem Hrafn Þráinsson mætti Will Bean til að binda enda á eina bölvuðustu MMA sögu heimsins. Það var kannski ritað í skýin að þessi bardagi gæti ekki gengið smurt fyrir sig en eftir eina lotu af virkilega spennandi höggskiptum og topp skemmtun kom í ljós að Hrafn hafði handleggsbrotnað eftir spark frá Will og gat Hrafn ekki haldið áfram keppni. Niðurstaðan var fremur súr en Will Bean sýndi ekkert nema virðingu og hlýju í garð Hrafns og þakkaði Íslendingum og mótshöldurum fyrir góða upplifun á Íslandi.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið