spot_img
Friday, February 6, 2026
Minigarðurinnspot_imgspot_imgspot_img
HomeFimmta LotanFlúðu stríðið í Úkraínu og settust að á Íslandi, Vitalii og Ernest...

Flúðu stríðið í Úkraínu og settust að á Íslandi, Vitalii og Ernest í viðtali

Vitalii Korshak og Ernest Herashchenko eru gestir þriðja þáttar vikunnar hjá Fimmtu Lotunni. Vitalii og Ernest komu í þáttinn fyrir nokkrum vikum en beðið var með útgáfu vegna þess að fréttirnar um titilbardaga Vitalii á Glacier Fight Night voru ekki enn opinberar. Það hefur nú verið staðfest að Vitalii mun berjast um léttvigtartitil GFN gegn Thomas Murris en því miður hefur Ernest meiðst og mun því ekki berjast 28. febrúar.

Vitalii og Ernest komu til Íslands á flótta undan stríðinu í heimalandinu og hafa mjög áhugaverða sögu að segja. Þeirra áætlun var að fara til Bandaríkjana og stoppa aðeins stutt við hér á landi en hér kunnu þeir vel við sig og ákvaðu á setjast hér að. Þeir hafa æft glímu og MMA í Reykjavík MMA og barist undir þeirra merkjum bæði á Caged Steel og fyrsta Glacier Fight Night viðburðinum en svo æfa þeir líka hnefaleika í Bogatýr undir Nikita Stepanovs. Undir þeirra merkjum hefur Vitalii barist og unnið til verðlauna en hann varð Vorbikarmeistari í fyrra.

Vitalii er á leiðinni í sinn níunda áhugamannabardaga á ferlinum og hefur hann sigrað alla átta hingað til. Hann sigraði ósigraðan andstæðing í fyrsta bardaganum sínum fyrir hönd Reykjavík MMA, eftir að hann flutti til Íslands, með þvílíkum yfirburðum og síðan þá hefur reynst erfitt að finna viljugan andstæðing til að mæta honum þar. Hann mætti hins vegar og sigraði Congo/Englendinginn Yves Musasa á Glacier Fight Night sem barðist svo um Caged Steel léttvigtartitilinn stutta seinna sem mörgum þótti afar skrítið og bíður Vitalii enn eftir tækifærinu á titilbardaga innan Caged Steel. Connor Nicolson sem sigraði Yves Musasa er nú ríkjandi meistari áhugamanna léttvigtar þyngdarflokksins og liggur beinast við að gefa Vitalii næstu titiláskorun en við sjáum til.

Fyrst mun Vitalii standa frammi fyrir líklega sínum erfiðasta bardaga til þessa þegar hann mætir enn reyndari andstæðingi, Thomas Murris, sem er á leiðinni í sinn átjánda. Murris hefur sigrað tólf, tapað fimm og barist á háu stigi í áhugamanna MMA. Hann er á tveggja bardaga taphrinu en þau töp komu á IMMAF Evrópumóti og á Frönsku Meistaramóti. Murris kemur frá Boxing Squad í Nice, Frakklandi og æfir m.a. með Manon Fiorot

Ernest hóf MMA ferilinn sinn með Reykjavík MMA þegar hann sigraði Leighton Baines með tæknilegu rothöggi eftir aðeins 40 sekúndur á Caged Steel 39 í mars í fyrra og er hann núna 2-0 sem áhugamaður eftir sigurinn á Birk Lund á fyrsta Glacier Fight Night viðburðinum sem fór alla leið í dómaraákvörðun.

Það stóð til að Ernest myndi mæta Arran Oliphant frá Higher Level Martial Arts í Whitburn, Skotlandi en þar æfir UFC bardagamaðurinn Paul Craig og er gymmið þekkt fyrir góða glímu. Oliphant sigraði Yonatan Francisco í titilbardaga um bantamvigtartitil Caged Steel í desember 2024 og nú ætlar Yonatan að stíga inn með skömmum fyrirvara og leysa félaga sinn Ernest af. Endurleikurinn verður nú háður í fjaðurvigt og verður áhugavert að sjá hvort sú breyting komi til með að hafa mikil áhrif. Þangað til mun Ernest leyfa meiðslum sínum að gróa og snýr vonandi sterkur tilbaka áður en við vitum af.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið