Jose Aldo mætir Conor McGregor á laugardaginn á UFC 194. Í tilefni þess rifjum við hér upp gamalt myndband af Aldo þegar hann keypti sín fyrstu jakkaföt.
Jose Aldo ólst upp í mikilli fátækt og átti fjölskyldan hans lítið fé milli handanna. Aldo var fjaðurvigtarmeistari WEC bardagasamtakanna en þegar WEC voru innleidd í UFC árið 2011 varð Aldo fyrsti (og eini hingað til) fjaðurvigtarmeistari UFC.
Það þurfti því að kaupa jakkaföt á meistarann en þetta voru fyrstu jakkaföt Aldo. Eins og sést á myndbandinu getur hann ekki hætt að hlæja enda ansi ólíkt því sem hann upplifði á yngri árum.