Hnefaleikafélög Hafnarfjarðar, Akraness og Reykjaness ferðuðust út til Lillestrom, Noregi og tóku þátt á Romerikke Open síðustu helgi. Tristan Styff og Benedikt Gylfi náu sér í gull, fleiri á palli og fengu strákarnir allir fáránlega mikið hrós fyrir frammistöðurnar sínar úr öllum áttum.
Tristan frá HFH tók heim gullverðlaun en hann sigraði bæði undanúrslita- og úrslitaviðureignir sínar með yfirburðum. Hann mætti strák í undanúrslitum sem er á radar hjá Norska landsliðinu og það úr varð ótrúlega flott og tæknileg viðureign. Tristan átti klárlega “level up moment” í þessari ferð að sögn Arnórs þjálfara síns og kemur heim mikið betri boxari heldur en hann fór út.
Benedikt Gylfi frá HFH tók einnig heim gullverðlaun en hann mætti sterkum andstæðing í úrslitaviðureign sem var með um 100 bardaga undir beltinu, auk 100 diploma bardaga, og sigraði Benni með glæsibrag. Benni var hársbreidd frá því að vera valinn maður mótsins, ef ekki hefði verið fyrir bardagann milli Eldar Redzig og Azis Aldiab þar sem Azis kom öllum á óvart, sigraði sinn flokk og fékk svo Romerikke beltið.
Adrian frá HFH mætti stórum og stæðilegum andstæðingi og útboxaði hann klárlega í fyrstu og annari lotu en það var aðeins farið að hægjast á honum í þriðju lotu, að sögn Arnórs þjálfara, og þá fór hann að fá á sig eitthvað af höggum, tapaði lotunni og síðar bardaganum. Nær allir voru þó sammála því að hann átti að vinna þetta, mótshaldararnir og aðrir þjálfarar líka. “Hann boxaði það vel að þetta er ekkert nema sigur í mínum bókum” sagði Arnór í samtali við MMA Fréttir.

Ísak Logi frá HFR tapaði á klofinni dómaraákvörðun eftir mjög jafna viðureign í undanúrslitum sem hefði vel getað fallið með honum. Hann keppti svo um bronsið og vann mjög flottan sigur og tryggði sér bronsið.
Guðmundur Máni frá HFR var dreginn beint í úrslit þar sem hann mætti mjög sterkum keppinaut frá Úkraínu og hann þurfti því miður að sætta sig við tap.
Vova frá HAK sigraði sína undanúrslita viðureign með klofinni dómaraákvörðun og keppti svo til úrslita. Vova tapaði sinni úrslitaviðureign á klofinni dómaraákvörðun eftir hnífjafna viðureign.
Björn Jónatan átti síðan að mæta mjög sterkum Norðmanni og margir aðilar í kringum mótið höfðu sérstakan augastað á þeirri viðureign. Því miður þurfti Norðmaðurinn að draga sig úr leik á sunnudagsmorgninum eftir að hafa slasað sig í sundlaugarferð á laugardeginum sem þýðir að Jónatan fékk walk over sigur en fékk því miður ekki að stíga í hringinn.






