Glacier Fight Night, fyrsta bardagakvöld Íslandssögunnar, verður haldið í Andrews Theater þann 15. nóvember næstkomandi. Við megum eiga von á átta bardaga skemmtun í Keflavíkinni þetta kvöld og munu þær Hekla Friðriksdóttir og Nicole Gomez mætast í eina kvennabardaga kvöldsins.
Hekla Friðriksdóttir (2 – 0) tilheyrir keppnisliði Reykavík MMA og barðist hún í fyrsta skipti undir formerkjum klúbbsins í mars fyrr á árinu. Þar mætti hún Paulette Spencer frá Bretlandi en Hekla afgreiddi Paulette á innan við 3 mínútum með armbar uppgjafartaki. Ekki amaleg leið til að hefja MMA ferilinn. Í september fékkst svo staðfest að Hekla fengi annan bardaga á árinu en Hekla hélt þá aftur út til Bretlands og mætti Nicole Vernon á UK Fighting Championships 40. Vernon reyndist mun sterkari andstæðingur og fór næstum því allar þrjár loturnar en þegar 3 sekúndur voru eftir af bardaganum tókst Heklu að læsa inn armbar uppgjafartaki og afþakkaði aðstoð dómaranna við að ráða úrslitunum. Hekla var líklega að vinna bardagann 2 – 1 eftir að hafa átt erfiða byrjun, unnið sig inn í bardagann og dóminerað Nicole undir lokin.
Hekla er hrikalega öflug í glímu og er með fjólublátt belti í Brazilian Jiu Jitsu. Glímukunnáttan hennar Heklu hefur verið í aðalhlutverki í báðum bardögunum hennar á árinu en það er vel við hæfi að taka fram að Hekla hafnaði í öðru sæti á ADCC Championship þar sem hún keppti í Intermediate flokki í -65 kg.
Hekla mætir Nicole Gomez frá Noregi í þessum sögulega bardaga en Nicole er að berjast sinn annan bardaga á ferlinum. Bardaginn hennar Nicole er á YouTube og hlekkur hér fyrir neðan. Af þeim bardaga að dæma má segja að Nicole kjósi að halda bardaganum standandi og hún sé ágætlega fær í að verja sig í gólfinu eins og hún gerir í bardaganum gegn Christina Osnes sem hótar tveimur uppgjafartökum strax í fyrstu lotu.
Sigur fyrir Heklu gegn Nicole Gomez myndi fullkomna keppnisárið fyrir okkar virkustu mma keppniskonu. Með sigri þann 15. nóvember myndi Hekla færa bardagametið sitt í þrjá sigra og núll töp ásamt því að hafa komist á pall á alþjóðlegu nogi glímumóti.







