Vilhjálmur Arnarsson hélt út til Ítalíu á Evrópumeistaramótið í BJJ um síðastliðna helgi. Vilhjálmur, betur þekktur sem Villi Turtle, var ekki eini Íslendingurinn á mótinu en VBC í Kópavogi var einnig með útsendara á mótinu og tókst Þresti Njálssyni úr þeirra búðum einnig að komast á verðlaunapall.
Besti árangur Íslendings síðan Gunnar Nelson komst á pall
Okkar allra besti, Gunnar Nelson, setti viðmiðið mjög hátt á sínum keppnistímum og þá sérstaklega árið 2009 þegar hann tók silfrið á heimsmeistaramóti IBJJF sem brúnbeltingur, gullið á Pan America sem brúnt belti og gullið í Pan America Nogi sem svart belti. Núna 16 árum seinna tókst Vilhjálmi að sækja verðlaun á heimsklassamóti í atvinnumannaflokki svartbeltinga.
Villi fékk frían sigur í fyrstu umferð og átti svo að mæta Tommy Langaker en sá slasaðist illa í glímunni sinni fyrir viðureignina gegn Vilhjálmi og neyddist til að draga sig úr keppni. Villi mætti svo hinum efnilega Pedro Veras í átta manna úrslitum. Glíman stóð ekki lengi yfir en Villa tókst að festa Pedro í beinan fótalás og kláraði glímuna á litlum 20 sekúndum.
Villi mætti svo Bretanum Shane Fishman í undanúrslitum. Fishman er virkilega góður glímumaður sem hefur gefið út kennsluefni á BJJ Fanatics og hefur sigrað Evrópumeistaramótið tvisvar sinnum með brúnt belti.
Glíman fór allar 10 mínúturnar og réðist á stigum en Fishman tryggði sér sigurinn með því að ná bakinu á Villa ásamt meðfylgjandi stigum. Fishman lauk svo mótinu í öðru sæti og Villi í því þriðja.
Þröstur Njáls sótti annað sæti í masters flokki
Þröstur Njálsson keppti fyrir hönd VBC úr Kópavogi í masters flokki blábeltinga. Þröstur hefur æft og keppt mikið á árinu og uppskar frábæran árangur á Evrópumeistaramótinu í Róm.
Þröstur mætti fyrst heimamanni sem hann sigraði á stigum. Að eigin sögn leitaði Þröstur sífellt eftir wristlock í glímunni en tókst ekki að finna uppgjafartakið áður en tíminn rann út. Þröstur vann svo næstu glímu einnig á stigum en mótherjinn hans Þrastar þótti mjög sigurstranglegur fyrir mótið. Þröstur dómineraði glímuna allan tímann og sigraði eftir dóminerandi frammistöðu.
Skemmtuninni lauk í þriðju glímunni þegar Þröstur mætti Daniel Ebosogo Torras en honum tókst að ná þresti í beinan fótalás. Þröstur og Daniel mættust svo aftur í opnum flokki en niðurstaðan var sú sama. Beinn fótalás og sigur til Daniel.







