Dan Hooker hefur dregið sig úr keppni gegn Justin Gaethje en þeir áttu að mætast í 5 lotu co-main bardaga UFC 313 sem haldið verður 8. mars í T-Mobile Arena í Las Vegas. Bardagaáðdáendur hafa eflaust verið spenntir að sjá þessa tvo kappa mætast en 3 menn hafa núþegar lýst yfir áhuga á að hlaupa í skarðið fyrir Hooker.
Dan Hooker er á góðri 3 bardaga sigurgöngu, hann kláraði Claudio Puelles í 2. lotu í nóvember 2022 og síðan þá hefur hann unnið tvo sterka andstæðinga, Jalin Turner og Mateusz Gamrot, báða á klofinni dómaraákvörðun í æsispennandi bardögum. Hooker er þekktur fyrir að gefa allt sem hann hefur í hvern bardaga og sagði hann sjálfur að hann væri búinn að sætta sig við það að hann muni þurfa að fara með sjúkrabíl á bráðamóttökuna eftir bardagann við Gaethje sama hvort hann myndi vinna eða tapa. En nú hefur hann því miður orðið fyrir meiðslum í hendinni og neyðst til að draga sig úr bardaganum.
Þeir þrír bardagamenn sem lýst hafa áhuga á samfélagsmiðlum að taka bardagann gegn Gaethje með skömmum fyrir eru Renato Moicano, Mateusz Gamrot og Rafael Fiziev. Moicano sem barðist við meistarann Islam Makhachev í janúar sagði að 2 vikur væru nóg, hann hefði tíma fyrir 2 eða 3 sparr æfingar og yrði tilbúinn ef hann fengi kallið. Gamrot sagðist vera tilbúinn í slaginn, “2 vikur, skiptir ekki máli” sagði hann og Fiziev sem mætti Gaethje fyrir 2 árum vill fá annað tækifæri en Gaethje sigraði hann á meirihluta ákvörðun á sínum tíma.





