Friday, May 3, 2024
HomeErlentHvenær byrjar UFC 244?

Hvenær byrjar UFC 244?

UFC 244 fer fram í kvöld í Madison Square Garden í New York. Í aðalbardaga kvöldsins mætast þeir Jorge Masvidal og Nate Diaz en hér má sjá hvenær bardagarnir byrja.

Fyrsti bardagi kvöldsins hefst kl. 22:30 á Fight Pass rás UFC. Aðalhluti bardagakvöldsins hefst síðan kl. 2:00 og verður í beinni á Stöð 2 Sport. Hér má sjá þá bardaga sem eru á dagskrá.

Aðalhluti bardagakvöldsins (hefst kl. 2:00)

Veltivigt: Jorge Masvidal gegn Nate Diaz
Millivigt: Kelvin Gastelum gegn Darren Till
Veltivigt: Stephen Thompson gegn Vicente Luque
Þungavigt: Derrick Lewis gegn Blagoy Ivanov
Léttvigt: Kevin Lee gegn Gregor Gillespie

ESPN2 upphitunarbardagar (hefjast á miðnætti):

Léttþungavigt: Corey Anderson gegn Johnny Walker
Fjaðurvigt: Shane Burgos gegn Makwan Amirkhani
Millivigt: Brad Tavares gegn Edmen Shahbazyan
Þungavigt: Andrei Arlovski gegn Jairzinho Rozenstruik

UFC Fight Pass upphitunarbardagar: (hefjast kl. 22:30)

Hentivigt (127,2 pund*): Katlyn Chookagian gegn Jennifer Maia
Veltivigt: Lyman Good gegn Chance Rencountre
Fjaðurvigt: Julio Arce gegn Hakeem Dawodu

*Jennifer Maia náði ekki vigt.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular