Tuesday, April 16, 2024
HomeErlentHvenær byrjar UFC Fight Night: Dos Anjos vs. Ferguson?

Hvenær byrjar UFC Fight Night: Dos Anjos vs. Ferguson?

tuf-3-finale-dos-anjos-vs-ferguson-poster-750Í kvöld fer fram ansi gott bardagakvöld í Mexíkó. Í aðalbardaga kvöldsins mætast þeir Rafael dos Anjos og Tony Ferguson en hér má sjá hvenær bardagarnir byrja í kvöld.

Bardagakvöldið fer fram í Mexíkóborg í Mexíkó en borgin er hátt yfir sjávarmáli en það hefur reynst mörgum bardagamönnum erfitt.

Fyrsti bardagi kvöldsins hefst kl 22:30 en aðalhluti bardagakvöldsins hefst kl 2. Alla bardaga kvöldsins geta bardagaaðdáendur hér heima horft á í beinni útsendingu á Fight Pass rás UFC.

Aðalhluti bardagakvöldsins (hefst kl 2)

Léttvigt: Rafael dos Anjos gegn Tony Ferguson
Léttvigt: Diego Sanchez gegn Marcin Held
Hentivigt (155 pund)*: Ricardo Lamas gegn Charles Oliveira
Léttvigt: Martín Bravo gegn Claudio Puelles
Léttvigt: Beneil Dariush gegn Rashid Magomedov
Strávigt kvenna: Alexa Grasso gegn Heather Jo Clark

Fox Sports 1 upphitunarbardagar (hefjast á miðnætti)

Hentivigt (138 pund)**: Érik Pérez gegn Felipe Arantes
Hentivigt (140 pund)***: Marco Beltrán gegn Joe Soto
Veltivigt: Erick Montaño gegn Max Griffin
Bantamvigt: Henry Briones  gegn Douglas Silva de Andrade

Upphitunarbardagar á Fight Pass rás UFC (hefjast kl 22:30)

Millivigt: Sam Alvey gegn Alex Nicholson
Léttvigt: Marco Polo Reyes gegn Jason Novelli
Fjaðurvigt: Enrique Barzola gegn Chris Avila

*Charles Oliveira var níu pundum of þungur
**Arantes var of þungur og fær Perez 20% af launum hans
***Fyrirfram ákveðin hentivigt

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular