Thursday, May 2, 2024
HomeForsíðaHver er nýji veltivigtarmeistarinn Johny Hendricks?

Hver er nýji veltivigtarmeistarinn Johny Hendricks?

Um nýliðna helgi sigraði Bandaríkjamaðurinn Johny Hendricks veltivigtartitil UFC. Hans bíður nú það erfiða verkefni að verja titilinn í erfiðasta og fjölmennasta þyngdarflokki UFC.

ufc154_11_hendricks_vs_kampmann_009Veltivigtin er smekkfull af verðugum keppendum og er sannkallað hákarlabúr hæfileikaríkra bardagamanna. Ef litið er á topp 15 listann yfir bestu veltivigtarmenn veraldar eru þar margir afar sterkir bardagamenn eins og Tyron Woodley, Hector Lombard og auðvitað okkar maður, Gunnar Nelson. Johny Hendricks trónir á toppnum í veltivigtinni eftir að hafa sigrað Robbie Lawler í frábærum bardaga um nýliðna helgi. Bardaginn var hnífjafn þar sem Hendricks sigraði fyrstu tvær loturnar en Lawler kom sterkur til baka og sigraði næstu tvær. Það var því öllum ljóst að úrslitin myndu ráðast í fimmtu og síðustu lotunni en þar hafði Hendricks betur og sigraði eftir dómaraákvörðun.

Johny Hendricks er einn af bestu glímumönnum UFC í dag. Hann átti frábæran feril í bandarísku háskólaglímunni og hlaut “All-American” nafnbótina fjórum sinnum (á topp 8 í sínum þyngdarflokki) og varð tvöfaldur Bandaríkjameistari í efstu deild í glímunni. Hann var með fremur einfaldan stíl í glímunni en það sem aðgreindi hann frá öðrum keppendum var hugurinn. Johny Hendricks virtist geta haldið endalaust áfram og varð aldrei þreyttur. Hann pressaði andstæðinga sína gríðarlega þangað til þeir brotnuðu og þá tók hann yfir glímuna. Auk þess var hann sagður ótrúlega sterkur og gat auðveldlega lyft andstæðingum sínum upp fyrir haus.

Hendricks var sagður “slæmi strákurinn” í glímunni. Hann ögraði andstæðingum sínum fyrir og eftir glímu og sýndi þeim litla virðingu. Hann naut þess þegar áhorfendur bauluðu á hann og hvatti það hann áfram. Fólk elskaði að hata hann.

Hendricks keppir í veltivigtinni (-77 kg flokkur) en hann sker verulega mikið niður til að komast í þá þyngd. Á vigtuninni síðasta föstudag náði hann ekki 77 kg takmarkinu en fékk auka tvo klukkutíma til að ná því. Það gekk eftir og var Hendricks 77 kg um fjögur leitið á föstudeginum. Á laugardagsmorgni birti Hendricks mynd af sér á Twitter þar sem hann var orðinn 88 kg! Það eru gríðarleg vísindi á bakvið svona niðurskurð en þetta mun þó seint teljast heilbrigt.

Hendricks hefur hingað til ekki verið jafn umdeildur í MMA eins og hann var í glímunni. Ferill hans í MMA hefur aðallega einkennst af svakalegum rothöggum með sinni hættulegu vinstri hönd og yfirburðar glímugetu. Það verður ekki auðvelt verk fyrir Hendricks að verja veltivigtarbeltið en óvíst er hvenær fyrsta titilvörnin fer fram. Georges St. Pierre ríkti yfir veltivigtinni í sex ár áður en hann tók sér hlé frá íþróttinni og mun sennilega enginn ríkja jafn lengi yfir veltivigtinni eins og hann gerði. Hendricks ætlar sér sennilega að reyna að leika það eftir en það verður erfitt verk í hæfileikaríkri veltivigtinni.

Hendricks verður seint sagður tæknilega góður boxari. Hann kýlir þó af slíkum krafti að menn eiga erfitt með að verjast höggunum. Uppskeran eru átta sigrar eftir rothögg og hefur hann stimplað sig inn sem einn höggþyngsti maður veltivigtarinnar. Í bardaganum um helgina fengu áhorfendur að sjá nýja hlið af Hendricks þegar hann beitti lágspörkum. Það er tækni sem Hendricks hefur ekki sýnt áður og sýnir að hann er enn að þróa leik sinn. Það verður því gaman að sjá Hendricks halda áfram að bæta sig en nú tekur það erfiða við, að verja beltið.

Hér að neðan má sjá brot af hans bestu rothöggum:

Hendricks rotar Charlie Brennerman

 

 

 

 

 

Hendricks rotar Jon Fitch

 

 

 

 

 

Hendricks rotar Martin Kampmann

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

1 COMMENT

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular