Laugardaginn 26. júlí fer fram fyrsta hvítbeltingamót landsins í brasilísku jiu-jitsu (BJJ). Mótið er jafnframt frumraun æfingarfélagsins VBC í mótshaldi fyrir BJJ en þeir héldu einnig sitt fyrsta boxmót fyrr á árinu.
Eins og fram hefur komið þá er mótið aðeins ætlað hvítbeltingum í BJJ. Mótið er haldið í húsakynnum VBC að Smiðjuvegi 28, Kópavogi. Húsið opnar kl 10:00 og mótið hefst stundvíslega klukkan 11:00. Að verðlaunaafhendingu lokinni verður slegið upp í grillveislu fyrir þátttakendur og gesti.
Skráning á mótið fer fram í gegnum vbc@vbc.is og er keppnisgjald tvö þúsund krónur. Skráning verður að fara fram fyrir klukkan 22:00 þann 23. júlí. VBC hefur tjáð MMA Fréttum að unnið sé hörðum höndum að superfights fyrir keppnina. Athyglisvert verður að fylgjast með framgöngu í þeim málum.