Ingibjörg Helga Arnþórsdóttir var rétt í þessu að vinna bardaga sinn á EM í MMA. Ingibjörg sigraði eftir dómaraákvörðun og er komin áfram í undanúrslit.
Ingibjörg Helga úr Tý mætti hinni finnsku Inka Räty í morgun á Evrópumótinu í MMA sem fer fram í Rúmeníu um þessar mundir. Þetta var fyrsti MMA bardagi Ingibjargar en hún hefur mikla reynslu úr boxi og karate.
Sigurinn var í raun aldrei í hættu fyrir Ingibjörgu enda naut hún mikilla yfirburða í standandi viðureign. Sú finnska átti ekki roð í Ingibjörgu standandi og át nokkur þung högg frá henni.
Räty reyndi að ná Ingibjörgu niður og var nálægt því í 1. lotu en endaði þess í stað með bakið í gólfinu þar sem hún var þó ekki langt frá því að ná armlás. Ingibjörg varðist þó vel og kom sér úr armlásnum. Það sama var upp á teningnum í lok 3. lotu en aftur varðist Ingibjörg vel. Annars var sigurinn hjá Ingibjörgu í raun aldrei í hættu.
Flott frammistaða hjá Ingibjörgu í dag en hún mætir Ilaria Norcia frá Ítalíu á morgun en sú ítalska sat hjá í 1. umferð í dag. Norcia er 2-6 sem áhugamaður í MMA samkvæmt Tapology og hefur áður mætt íslenskri stelpu. Norcia tapaði fyrir Sunnu Rannveigu Davíðsdóttur þegar Sunna tók gullið á Evrópumótinu í MMA árið 2015.