Íslandsmeistaramótið í brasilísku jiu-jitsu fer fram á morgun. Mótið fer fram í Mjölni og hefjast fyrstu glímur kl 11.
Rúmlega 60 keppendur eru skráðir til leiks í ár frá fimm félögum en keppt er í galla (gi) í átta þyngdarflokkum karla og tveimur þyngdarflokkum kvenna auk opinna flokka. Þau félög sem senda keppendur á mótið í ár eru Mjölnir, VBC, Fenrir, Sleipnir og Gracie Iceland.
Mótið fer fram í Mjölniskastalanum, Seljavegi 2, en húsið opnar kl 10. Hér að neðan má sjá alla þyngdarflokkana:
Konur:
-64 kg
+64 kg
Opinn flokkur
Karlar:
-64 kg
-70 kg
-76 kg
-82 kg
-88 kg
-94 kg
-100 kg
+100 kg
Opinn flokkur