Jean Silva þarf að horfast í augu við súran raunveruleika eftir svekkjandi tap á Noche UFC um helgina. Þetta var í fyrsta skipti á ferli hans sem hann tapar gegn rothöggi og jafnframt fyrsta tapið hans síðan árið 2018.
Fyrir bardagann hafði Silva unnið fimm bardaga í röð í UFC.Í annarri lotu át Silva í snúningsolnboga frá Diego Lopes sem særði hann illa. Lopes fylgdi eftir með höggum þar til dómarinn, Mike Beltran, stöðvaði bardagann.
Silva mótmælti stoppinu og sveiflaði meira að segja í átt að Lopes eftir bardagann, en hann hefur nú beðist afsökunar á hegðun sinni.
„Því miður lét ég tilfinningarnar ráða of mikið í gær“ sagði Silva á Instagram-síðu sinni. „Ég var að finna hann vel í annarri lotu, en ég fór of geyst og ætlaði bara að slást.“
Silva átti erfitt í fyrstu lotu þar sem Lopes náði honum niður og var nálægt því að klára bardagann. Í annarri lotu kom Silva sterkari inn, lenti góðum höggum og sýndi sinn hefðbundna höggstíl. En að lokum var það Lopes sem lenti högginu sem skipti máli. Í yfirlýsingu sinni tók Silva ábyrgð á tapinu sínu.
„Ég endaði á að berjast einn, án þess að fylgja áætlun liðsins míns … Þannig að ábyrgðin á þessu tapi er öll mín.“
Tap Silva er hluti af erfiðu tímabili fyrir lið hans, The Fighting Nerds, þar sem Caio Borralho og Mauricio Ruffy töpuðu einnig á UFC Paris um síðustu helgi. Þetta hefur leitt til spurninga um stöðu liðsins og framtíð þess.Silva segist þó ekki missa trú á liðinu sínu og lofar að þeir muni koma sterkari til baka.
„Eitt var rétt hjá ykkur: við töpuðum þrír í röð“ sagði hann. „Þetta þýðir að við erum að gera sömu mistökin. Við, ég, Caio og Ruffy, munum hittast, ræða þetta og bæta okkur. Hvort sem fólki líkar það eða ekki, við komum aftur.“
Innslægið frá Silva má finna í story á Instagram síðunni hans @jeansilvamma






