Þriðji titilbardaginn á UFC 217 var að bætast við. Joanna Jedrzejczyk mun freista þess að verja strávigtartitil sinn er hún mætir Rose Namajunas.
UFC 217 verður stórt kvöld en bardagakvöldið fer fram í Madison Square Garden í New York. Fyrir hafði UFC staðfest titilbardaga Michael Bisping gegn Georges St. Pierre í millivigt og titilbardaga Gody Garbrandt gegn T.J. Dillashaw í bantamvigt.
Síðast sáum við Joanna Jedrzejczyk sigra Jessicu Andrade á UFC 211 og hefur hún núna varið beltið í fimm skipti. Rose Namajunas hefur unnið fjóra af síðustu fimm bardögum sínum en síðast sigraði hún Michelle Waterson í apríl.
UFC 217 fer fram þann 4. nóvember og verður þetta eitt stærsta bardagakvöld ársins.
? BOOM ?
THREE title fights hit MSG as @JoannaMMA takes on @RoseNamajunas @TheGarden for #UFC217‼️ pic.twitter.com/6lFPqn7fxC
— UFC (@ufc) September 12, 2017