Óhætt er að segja að það sé lítill kærleikur á milli Jon Jones og Daniel Cormier. Kapparnir áttu í orðaskiptum á Twitter í gær.
Jones hefur nú lokið banninu sínu og mun væntanlega reyna að endurheimta titilinn sinn á næsta ári. Daniel Cormier heldur beltinu eftir að Jones var sviptur titlinum.
Búist er við að kapparnir mætist í New York í apríl en það yrði fyrsti viðburður UFC í New York. Sem stendur er MMA ólöglegt í New York en UFC freistar þess að New York ríki mun leyfa það á næstunni og hafa bókað Madison Square Garden í apríl.
New York er heimaborg Jones en Cormier sagði eftir sigur sinn á Alexander Gustafsson að Jones ætti ekki skilið að fá að berjast í New York eftir allt sem hann hefur gert. Jones segist vera sama hvar bardaginn fari fram.
Honestly I’d fight Daniel in the OSU wrestling room. John Smith can be our referee. Just trying to take back what’s mine
— Jon Bones Jones (@JonnyBones) October 30, 2015
Perfect Daniel, I’ll be at Jackson’s MMA grand opening this Saturday Oct 31st if you want to stop by. #BringyourKleenex
— Jon Bones Jones (@JonnyBones) October 30, 2015
Cormier sagðist ætla að kíkja til Albuquerque (þar sem Jones æfir) en þar var Jackson-Winkeljohn að opna nýja og glæsilega aðstöðu.
Jon boy I’ll be there! I’m a man I don’t playing games. See u Saturday! @JonnyBones — Daniel Cormier (@dc_mma) October 30, 2015
Jones er nú á skilorði eftir brot sín og auðvitað notaði Cormier það til að pota í Jones
I’m gonna be there but I need u to make it to the octagon, we don’t wanna violate parole now do we 🙂 @JonnyBones — Daniel Cormier (@dc_mma) October 30, 2015
Jones svarar:
Awesome, I’ll be waiting. 301 Dr Martin Luther King Jr Ave NE, Albuquerque, NM 87102 — Jon Bones Jones (@JonnyBones) October 30, 2015
Og hélt svo áfram..
Too pussy to fight at the garden but flies all the way to Albuquerque to prove he’s a man #Scratchingmyhead you on your way pussy?
— Jon Bones Jones (@JonnyBones) October 31, 2015