UFC bardagamaðurinn Josh Samman er látinn. Samman lést á sjúkrahúsi í Flórída í dag eftir að hafa verið nokkra daga í dái.
Síðastliðinn fimmtudag fannst Samman meðvitundarlaus ásamt vini sínum Troy Kirkingburg. Samman og Kirkingburg fundust í íbúð hins síðarnefnda en Kirkingburg var úrskurðaður látinn á staðnum.
Dánarorsök Samman er óljós en hann var 28 ára gamall. Í skýrslu lögreglu segir að lögreglan hafi verið kölluð til vegna gruns um of stórs skammts fíkniefna.
Samman hafði áður glímt við fíkniefnadjöfulinn eins og hann greindi frá í bókinni sinni The Housekeeper: Love, Death and Prizefighting. Unnusta Samman, Hailey Bevis, lést í bílslysi árið 2013 og var Samman eyðilagður og þjakaður af samviskubiti enda höfðu þau átt í samskiptum í textaskilaboðum skömmu fyrir bílslysið.
Samman snéri aftur í búrið eftir árs fjarveru á afmælisdegi unnustu sinnar og rotaði Eddie Gordon með hásparki. Ævintýraleg endurkoma og eitt af rothöggum ársins.
Samman var frábær penni og skrifaði reglulega fyrir Bloody Elbow, UFC.com og fleiri miðla. Samman komst inn í 17. seríu The Ultimate Fighter þar sem hann tapaði í undanúrslitum fyrir sigurvegara seríunnar, Kelvin Gastelum.
Samman átti að berjast við Oluwale Bambgose í desember og hafði nýlega skrifað undir samning þess efnis.
Bout contract signed. Happy happy pic.twitter.com/JZcez6urXP
— Josh Samman (@JoshSamman) September 26, 2016
Hvíl í friði Josh Samman.