Robelis Despaigne heldur uppteknum hætti og sigraði þriðja Karate Combat bardagann sinn með rothöggi eftir 8 sekúndur og hefur nú eytt samtals 24 sekúndum í gryfjunni í 3 bardögum.
Það var mikil spenna fyrir Robelis Despaigne þegar hann skrifaði undir hjá UFC sem færðist enn í aukarnar þegar hann sigraði fyrsta bardagann sinn með rothöggi eftir 18 sekúndur gegn Josh Parisian. Sú spenna hvarf jafn fljótt og hún varð til þegar komið var upp um hann í næstu tveimur bardögum sem hann tapaði báðum á dómaraúrskurði. Despaigne hefur þó fundið sér nýtt heimili í Karate Combat þar sem styrkleikar hans hafa fengið að njóta sín einstaklega vel.
Despaigne mætti Brasilíumanninum Roggers Souza á Karate Combat 53 viðburðinum sem haldinn var í Denver, Colorado í nótt. Souza var að berjast sinn fyrsta Karate Combat bardaga en hann er 15-8 sem atvinnumaður í MMA.
Leiftursnögga rothöggið, eða bardagann í heild öllu heldur, má sjá hér að neðan: