Það er nýr Logi Geirsson á götunni og þessi er mun svakalegri en forveri sinn! Logi Geirsson vann -99 kg og opna flokkinn á Mjölni Open sem haldið var um helgina og er þar að auki nýkominn heim aftur eftir góða ferð til Finnlands þar sem hann vann gullið í ADCC Open.
Við fengum Loga í smá spjall og kynntumst honum aðeins betur. Smá höskuldarviðvörun – þetta er ekkert eðlilega heilsteyptur drengur sem á fyrir sér bjarta framtíð!